|
|
06.11.2006 10:39:36 / perla7
Já, eins og mørg ykkar vita hef ég ákvedid ad flytja heim til
Íslands um jólin og fara í MA thróunarfrædum eftir áramót... og
thad leggst bara ágætlega í mig ad fara ad byrja í skólanum aftur
og taka pásu á Køben í bili!!! Kannski madur fari frekar ad vinna í
Køben næsta sumar, í skiptinám seinna eda eitthvad í thá áttina?? 
Ég og Selma systir ætlum ad leigja saman í Rvk frá janúar en vantar
íbúd, helst midsvædis... ef thid vitid um eitthvad (sem kostar ekki
milljón á mánudi) thætti mér óskøp vænt um ad fá ábendingu  Svo er
líka laust herbergid okkar á Leifsgade, á Islandsbrygge, í janúar
ef thid vitid um einhvern skemmtilegan sem er ad flytja til
Køben?  Frábær stadsetning, stórt herbergi 120 fermetra íbúd. Í
íbúdinni eru 2 ønnur herb. fyrir utan stofu thannig ad thad eru
minnst 3 og mest 6 ad deila íbúdinni á hverjum tíma... ég er búin
ad búa tharna í tæpt ár samanlagt og búid med heilum haug af
yndislegu fólki. Íbúdin er med húsgøgnum, thvottavél, sjónvarpi,
video, dvd og nágrannainterneti (á vissum stødum). Svo er allt í
næsta nágrenni: fínt kaffihús (med thrádlausu neti), bakarí,
bókasøfn, súpermarkadir o.s.fv. Thad tekur um 5 mín. ad hljóla
nidur á Rádhústorg og á sumrin er opid útivistarsvædi vid
"bryggjuna" thar sem hægt er "hygge" sig í sólinni med fullt af
ødru hálfnøktu fólki, drekka bjór og støkkva í sjóinn. Herb. kostar
4000 dkk á mánudi (ég og Selma búum saman í einu thannig ad thad er
2000 á mann) en madur tharf ekki ad borga neitt deposit (tryggingu)
eda skuldbinda sig ad ødru leyti en ad redda annarri gódri
manneskju fyrir sig thegar madur flytur út (tilvalid fyrir fólk sem
er ad flytja út og vill leyta sér ad einhverju ødru í rólegheitunum
eda fyrir fólk sem er ad bída eftir kollegi). Thad væri yndislegt
ef thid getid adstodad mig eitthvad  Knús og kremj, Perla  p.s.
djøfull er safari leidinlegur vafrari... thetta kemur bara allt í
klessu hérna!!!!!
»
25.08.2006 10:40:41 / perla7
Logdum af stad um 11 leytid heiman fra okkur i gaer og eftir lest,
leigubil, straeto, flugvel, straeto og leigubil endudum vid morgum
klukkutimum seinna a tonleikum med Beck og Radiohead.
Algjor snilld... kom upp i fyrradag og Giita og Joss reddudu midum
(longu ordid uppselt). Baedi bondin voru gedveik og yndislegt ad
hitta Giitu og Joss aftur!
I kvold eru thad svo Daft Punk... jei!!! og a morgun forum vid a
litla eyju vid Vesturstrondina thar sem er 120 manna dans-party...
Athyglisvert, thar sem ad eg hef nu ekki verid thekkt sem mikill
ahugamadur um danstonlist... hehehehhe!!! En thetta verdur
orugglega storkostlegt.
Jaeja, bara rett ad kikja inn og segja hae... erum ad fara i brunch
med pabba Giitu og svo eru Giita og Soley ad fara ad versla. Held
ad eg og Solvi aetlum bara ad skoda borgina og kannski kikja a
kaffihus a medan.
Gaman i utlondum!!!!
knus og kremj fra Dublin, Perlan
»
21.08.2006 17:54:14 / perla7
Já, það dregur til tíðinda í sýndarveruleika lífi mínu... haldiði
að ég eigi ekki heila 9 vini á mæspeisinu!!! Þetta getur maður...
hehehehehe
Nú er bara að finna út hvernig ég get gert síðuna mína flotta.
Annars er mest lítið að frétta... djammið á föstudaginn var hið
prýðilegasta. Íslensku tónlistarmennirnir stóðu sig frábærlega og
við vorum svona líka hress á því eftir kokteildrykkjuna á
Leifsgötunni.
Fannst alveg frábær hugmynd að bjóða í eftirpartý heim til mín, en
enginn vildi koma í partý þannig að ég endaði með Rúnari á
kebabstað hér á Íslandsbryggju og svo bara heim að sofa...
hehhehehe
Sorgleg gella!!!!
knús og kremj, Perlan
»
20.08.2006 20:42:18 / perla7
Nú er ég búin að stofna einhvurslags myspace... hehehehe  en ég
kann ekki að bjóða neinum í heimsókn
og kann ennþá síður að skreyta síðuna mína!!! en mér tókst eftir
nokkurt ströggl að minnka mynd sem ég gat svo hennt inn (mjög stolt
yfir því).
Algjör lúði!!!!
.... en ef þið (sem ég þekki) sjáið þetta og langar að bjóða mér,
þá er ég perla1978... og e-mailið sem ég notaði er:
perlahreggvidsdottir@yahoo.com.
Skítt að þurfa að vera með myspace-síðu sjálfur til að skoða hjá
öðrum... en ég lét allavegana að endingu undan þrýstingi til að
geta svalað óþrjótandi forvitni minni um líf annarra.
Vonandi á ég eftir að eignast einhverja vini... ehheheheheh 
Perlan
»
18.08.2006 10:02:50 / perla7
Þessi helgi er fyrsta helgin mín í slatta tíma þar sem ég er ekki
að vinna... jey  og það verður tekið á því í kvöld.
Það er eitthvað DR (Danmarks radio) electro festival í gangi og í
kvöld spila hvorki meira né minna en: Trabant, Apparat og Unsound (KGB). Þar
sem að tónleikarnir byrja snemma (um 8 leitið... held ég) er búið
að skipuleggja kokteil-hitting á Leifsgötunni um 4 leytið...
hehehheheh  það er enginn smá metnaður í fólkinu. Svo verður farin
hópferð niður í DR húsið og djammað fram eftir nóttu.
Svo erum ég og Sölvi að fara að kíkja í nokkra daga ferð til
Dublinar að hitta Giitu
(frænku Sölva) og Josh. Hlakka ekkert smá til að fara til útlanda.
Sóley og Gauti ætla að koma frá Íslandi og við ætlum að skella
okkur á Daft Punk tónleika.
Ekki nóg með það heldur eru einhverjir félagar Giitu og Josh að
spila kvöldið á undan og svo á laugardeginum förum við á eitthvað
festival á lítilli eyju rétt hjá Dublin. Þar skilst mér að verði
tjaldað, drukkinn bjór, hlustað á tónlist og svo farið heim seinni
partinn á sunnudeginum.
Þar sem að ég hef aldrei komið til Dublin áður ætla ég að nota
allavegana einn dag í smá túristapakka (þjóðminjasafnið og kannski
einhverjar listasýningar). En annars verður þetta bara chill og
djamm. Þar sem að ég er blessunarlega laus við að eiga peninga
slepp ég við allan verslunarpakkann... hehehehehhe
Skólinn er bara nokkuð
nettur... erum að föndra og prufa allskonar dót. Erum núna í
svokölluðu "þverfaglegu verkefni". Okkur er skipt niður í
vinnustofur þar sem við fáum að kynnast mismunandi
vinnuaðferðum og forritumm 3 daga í senn. Er búin að búa til
bíl og láta hann keyra í Flash... heheheheh  geðveikt flink!!!!!
Búa til bækling og plakat í einhverju uppsetningarforriti og fara í
grunnteikningu í einhverju grunnteikningarforriti (djö...
leiðinlegt). Svo erum við líka búin að vera að föndra stensla og
spreyja myndir.
Eftir hádegi erum við svo að vinna í 6-8 manna hópum (okkar er 7
manns af misgáfulegu liði) og þá erum við að vinna stærðar
innsetningarverkefni útfrá þemanu "tími" sem er mjög gaman
þar sem að við fáum alveg 3-4 vikur til að vinna það.... án þess að
vera montin þá held ég að okkar verði lang-lang-lang flottast...
hehehehehehe
Ég er hætt á Bopa
(kaffihúsinu) og farin að vinna á elliheimili... búin að vinna 3 vaktir.
Þetta er mun betra en ég bjóst við (var alltaf frekar hrædd við
elliheimili þar sem að maður þarf að hjálpa fólki við klósettferðir
og svona). En skvísurnar á minni hæð eru æði þó að ein sé alltaf
fussandi yfir að hún skilji mig ekki... samt getum við vel spjallað
saman... ehheheheh  samstarfskona mín benti henni kurteisislega á
að þar sem að hún væri frá Jótlandi skyldi fólk hana alls ekki
alltaf heldur. Þetta fannst henni voða fyndið og hún tuðar sjaldnar
yfir því að hún skylji mig ekki eftir það. Elliheimili eru almennt
betur borguð en kaffihúsavinna í Danmörku og vinnutíminn er mun
henntugari (7-15 aðra hvora helgi) þannig að ég er nokk viss um að
ég hafi tekið rétta ákvörðun.
Jæja... nú ætla ég að hætta þessu bulli og fara að drífa mig niður
í skatt og redda mér fríkorti (í Dk getur maður unnið nokkurnveginn
fríkeypis frá skattinum ef maður er í skóla).... svo verður maður
víst að taka smá til áður en fólkið kemur í kokteil á eftir
Knús, kremj og kossar, Perlan
»
27.07.2006 14:38:18 / perla7
Sitjum á Íslandsbryggju í 30 stiga hita með fullt af góðu fólki
og komumst að því að við náum netinu
Búin að stökkva í sjóinn og nú erum við bara að grilla okkur í
sólinni og drekka bjór.
Ljúft líf.... hehehhehe
Kveðja frá Köben, Perla
»
26.07.2006 10:49:10 / perla7
Helvítis nágranninn er búinn að loka á okkur og við komumst því
ekki á netið í íbúðinni okkar
Mér líður líka eins og ég sé þunn eftir 11 tíma vinnudag í
einhverri geðveiki í gær... hélt ég myndi deyja á tímabili!!!! Var
bara orðin geðvonda og leiðinlega þjónustustúlkan. Hvað er það til
dæmis að fólk kaupi sér 2 kók og te og vilji setja það allt á
sitthvort dan-kortið þegar þau sjá að það er brjálað að gera og við
höfum varla undan???? og fólk sem kallar á mann "fröken, getum við
pantað" og tekur síðan 5 mínútur í að hugsa málið meðan maður
stendur yfir þeim??? Sumt fólk hefur bara enga skynjun á umhverfi
sitt!!!
Fór á mánudaginn í starfsmannahitting á Íslands Bryggju. Sátum í
sólinni, drukkum smá bjór og syntum í sjónum. Ágætis leið til að
kynnast fólkinu. Er að vinna með einni spænskri píu sem er alveg
ógeðslega fyndin og heldur uppi móralnum... svona manneskja sem
kann hreinlega ekki að stoppa!!!!
Um kvöldið kíkti ég svo í grill niður á Amager kollegíið. Kata og
Ágústa eru komnar aftur til Köben... Vei  Við vorum alveg 12-15
manns og þetta var hinn prýðilegasti hittingur.
Á leiðinni heim römbuðum ég og Sölvi í útibíó og sáum endann á Sin
City. Þetta er geðveikt sniðugt fyrirbæri, ókeypis bíó alla daga í
júlí á vegum Zulu-sjónvarpsstöðvarinnar og í þegar það er svona
heitt allan sólarhringinn þá er fátt betra en að taka með sér munch
og sitja á Hróarskeldutjaldstólunum undir beru lofti og horfa á
bíómynd. Fór með Ósk og Írisi á Walk the Line um daginn... þá var
bíóið líka í Öxnahallen sem er rétt hjá heima hjá mér.
Á leiðinni frá útibíóinu á mánudaginn stoppuðu einhver "fífl" út á
miðri götu, rétt eftir umferðaljós. Annar þeirra gaf merki en hinn
ekki og ég bombaði beint aftan á hann og datt í götuna. Þegar ég
stóð upp, alveg fokvond og ætlaði að fara að skammast eitthvað sé
ég að þetta er Ingi vinur hennar Helgu Þóreyar (Sound strákurinn
sem er að vinna í 12 tónum á Fiolstræde)... ég var svo hissa að ég
gleymdi NÆSTUM að vera pirruð. Annað skiptið sem ég dett á hjóli
hérna og þá klessi ég á íslenskan gaur sem ég kannast við...
hehehhehehe
Annars er bara allt fínt að frétta. Erum að fara að flytja aftur
inn á Leifsgötuna, þar sem við bjuggum áður, þangað til við komumst
inn á kollegí. Daði býr ennþá í íbúðinni og svo er eitthvað par sem
ég hef ekki hitt ennþá. En við erum númer 14 á listanum þannig að
það ætti ekki að líða svo langur tími þar til við komumst inn.
Jæja, Ósk er komin að hitta mig þannig að ég ætla að hætta í
bili... þúsund knús og kossar til ykkar sem ég þekki (sem eru
örugglega allir sem kíkja yfir höfuð á þessa síðu).
Perlan
p.s. Elsku Auður mín, góða ferð til Ameríkunnar  Láttu heyra í þér
áður en þú ferð... og ég bið að heilsa stákunum þínum, mömmu þinni
og Michael og svo verðurðu að knúsa Guðlaugu frá mér!!!!
»
13.07.2006 11:48:58 / perla7
halló, halló, Ég veit ég er latasti bloggari í heimi  En hér kemur
smá færsla meðan ég bíð eftir að Sölvi sé tilbúinn í
útréttingaleiðangur.
Lífið í Köben er búið að vera heitt og sveitt undanfarið...
hitastigið á bilinu 25-30 gráður og ég er orðin rosa brún og
frískleg. Verst að moskítóflugurnar elska mig meira en flesta aðra
og ég er með einhver ofnæmisviðbrögð þannig að ég verð svona eins
og holdsveik fyrstu dagana
Fékk vinnu á Kaffi Bopa upp á Austurbrú og líkar bara ágætlega.
Þegar það er gott veður er það að vísu heldur mikil geðveiki á
köflum en ég er að vinna með fínum krökkum. Þetta eru allt Danir og
örfáir Norðmenn þannig að danskan mín er að taka framförum sem er
annað heldur en í lagervinnunni sem ég var í fyrra.
Hróarskelda var GEÐVEIK!!! Brjálað gott veður allan tímann og ég og
Beggi bróðir náðum að sjá flest það sem við ætluðum okkur og meira
til. Verst að maður eyðir alltaf svo miklum pening á svona hátíðum.
Þeir tónleikar sem stóðu upp úr eru: George Clinton funkmeistari,
Coldcut, Deftones, Eyvör Páls, Deus, The Streets og svo verð ég að
viðurkenna að bara það að sjá Morrisey var ótrúlegt kikk fyrir
mig  Hann tók þónokkuð að Smiths lögum en svo þekkti ég ekkert svo
mikið sólólögin hans. Semsagt stórkostleg hátíð og fullt af eðal
fólki.
Íbúðin sem við búum í núna er ótrúlega fín... staðsetningin
svolítið vafasöm en íbúðin er björt og rúmgóð, með alvöru eldhúsi,
svölum og meira að segja baðkari (þeir sem þekkja til í
Kaupmannahöfn vita hvað það er sjaldgæfur lúksus). En við erum að
fara að missa hana eftir 3 vikur og þá erum við heimilislaus...
ætlum að fara að reyna að finna útúr þessu í dag. Frekar pirrandi
að vera alltaf að flytja  En við eigum víst að komast inn á Amager
kollegiinu á næstu 3 mánuðum þannig að við þurfum bara að fiffa
eitthvað þangað til.
Byrja að læra ljósmyndun í iðnskóla Kaupmannahafnar 31.júlí sem ég
held að verði stórfínt.. læra svona tölvuvinnslu á ljósmyndum,
vefsíðugerð, framköllun og allskonar skemmtileg forrit (ég er svo
mikill tölvuhálfviti að þetta á eftir að koma sér vel). Svo ætla ég
í Meistaranám næsta vetur... að öllum líkindum hér í Köben
Anyways.. þetta er svona stytt útgáfa af lífi mínu þessa dagana.
Skrifa vonandi aftur bráðum.... þangað til, knús og kremj, Perla
»
16.03.2006 13:31:25 / perla7
Frekar flott line-up, það sem komið er!!!
roskilde-festival.dk
Rokk og ról og allir á Hróa... vei, vei, vei, vei
Kv. Perlan
»
28.02.2006 17:17:38 / perla7
Sælt veri fólkið,
Ég hef fengið ófá komment á leti mína við að blogga og
ekki að ástæðulausu. En ég afsaka mig með því að þetta blogg hafi
upprunalega verið ætlað sem e-milar um Kaupmannahafnardvölina þar
sem að ég er algjörlega óhæf í að halda uppi reglulegum samskiptum
milli landa (sama í hvaða formi þau eru). Þá gæti fólk bara kíkt á
þessa síðu til að sjá hvað er að gerast í mínu lífi.
Þetta verður semsagt líklega síðasta færslan þangað til ég flyt
aftur út til Köben þann 26. maí!!!!! Já, ég og Sölvi erum enn á
landinu og ef einhverjum sem ég þekki langar að spjalla eða leika
við mig er bara að hringja í mig. Ég er búin að vera með
sama númerið frá því að ég fékk mér gemsa.
Fyrst að ég er byrjuð kem ég með smá "öppdeit":
1. Er enn og aftur að vinna á Mokka kaffi.
2. Bý á Laugarvegi sem er ekkert smá næs!!!!!!
3. Ég er er enn að skrifa þessa déskotans BA ritgerð og ef
ég á að segja eins og er ég búin að vera á sama stað frá því að ég
ákvað að fresta henni fram á vorið.... merkilegt hvað maður þarf
alltaf að hafa tímapressu til að koma einhverju í verk.
4. Okkur Sölva tókst loksins að sækja um kollegi í
Danmörku eftir margar misheppnaðar tilraunir!!!! Þoli ekki
asnalegar heimasíður. Vonandi komumst við inn á Amager kollegið....
það væri svooo ljúft!!!!!!
5. Sölvi er á samning hjá húsgagnasmiði í Kópavogi og
líkar vel en ætlar að gera aðra tilraun til að komast á samning í
Kaupmannahöfn þegar við flytjum út í maí.
6. Snillingnum mér tókst að missa af eina Tofl
enskuprófinu sem er boðið upp á á Íslandi á þessari önn (næsta próf
er í september).... visssuð þið að maður þarf að skrá sig í próf
með meira en mánaðar fyrirvara!!!!??? heimskulegt kerfi
7. Hafði hugsað mér að fara í meistaranám næsta haust en
það sem mig langar að læra er annað hvort á dönsku (sem ég treysti
mér ekki alveg í strax) eða að ég er búin að missa af
umsóknarfrestinum ef það er kennt á ensku. Er eiginlega komin á það
að bíða bara í eitt ár með að fara aftur í skóla. Þetta hljómar
líka allt svo flókið eitthvað!!! Ágætt að taka ár í kæruleysi, læra
dönsku, borga upp skuldir og skoða það nám sem er í boði áður en ég
fer að æða út í eitthvað.
8. Annars er ég bara nokk sátt við að vera heima á Íslandi
í smá tíma og ég er viss um að Köben á eftir að leggjast mun betur
í mig þegar við förum út í vor
Jæja, þetta var bara svona pínulítið um það helsta sem er
að gerast. Ef þið vitið um íbúð út í Kaupmannahöfn í maí/júní,
vinnu handa mér eða samning í húsgagnasmíði handa Sölva endilega
látið mig vita.... hehheeheh Sakar ekki að vera bjartsýnn!!!
Annars óska ég ykkur bara góðra stunda, ástar og
umhyggju.
Kær kveðja,
Perlan
»
07.12.2005 18:07:58 / perla7
Settu nafnið þitt í kommentakerfið og.........
1. Ég segi þér eitthvað handahófskennt um þig.
2. Ég segi þér hvaða lag/mynd minnir mig á þig.
3. Ég segi þér hvaða bragð minnir mig á þig.
4. Ég segi þér fyrstu ljósu minninguna mína af þér.
5. Ég segi þér á hvaða dýr þú minnir mig á.
6. Ég spyr þig að einhverju sem ég hef velt lengi fyrir mér um
þig.
7. Ef þú lest þetta verðuru að setja þetta á bloggið þitt!
»
06.12.2005 14:51:05 / perla7
Bloggaði nú bara síðast í gær og það líka alveg fullt!!!! þannig
að þetta verður bara stutt. Ég er varla búin að fara út úr húsi
síðan ég kom heim af jólahlaðborðinu. Í gær lærði ég smá og
hjálpaði mömmu að búa til smákökur, svo fór ég geðveikt snemma
að sofa. Ekkert smá ljúft Dreymdi að vísu að ég var orðin
geðveik og týndi skónum mínum í strætó en það er annað mál...
heheheh!!!
Í allan morgunn er ég svo búin að vera að læra og drekka
kaffi með Begga bróður. Fyndið hvað "litli" bróðir minn er orðinn
geðveikt fullorðinn... hann er yfir 1 og 80, á 2. ári í
menntaskóla, hlustar á skemmtilega tónlist, les skemmtilegar
bækur og nú er hann nánast búinn að ákveða að flytja til
Reykjavíkur næsta haust.
Elfur Gígja er orðin heilla 9 ára og farin að læra á klarinett
eins og ég gerði þegar ég var lítil... vei!!! Ég veit að ég er
hlutdræg en hún er algjörlega besta barn í heimi.... bara
leiðinlegt hvað maður er mikið í burtu á meðan hún er að vaxa úr
grasi.
Jæja, ég er eitthvað hrillilega, ótrúlega væmin í dag þannig að
til að toppa þetta langar mig að tjá ykkur að ég á
yndislegustu foreldra í heimi og ég SAKNA SÖLVA meira en orð
fá lýst. Að þessu sögðu, lofa ég að skrifa aldrei svona væmið blogg
aftur og bið ykkur vel að lifa Kv. Perlan
»
05.12.2005 13:48:12 / perla7
Vei, vei, vei, vei!!!! Tölvan mín
er búin að fá make-over og nú virkar hún eins og engill. Hljóðið
er meira að segja komið á aftur???? Kom í ljós að gögnin mín
voru undir 200 megabætum og því hefði átt að vera nóg pláss en
hún sýndi alltaf að það væri of lítið diskpláss til að gera
einföldustu hluti. Þið tölvufólkið skilið þetta eflaust betur en
ég???!!
Garðar frændi er semsagt hetja
vikunnar og gott betur… ég var nefnilega orðin svo pirruð á
tölvunni minni að ég var alvarlega farin að hugleiða að kaupa mér
bara nýja…. hehhehehheheh
J
Fegin að ég gerði það
ekki!!!!
Annars er ég búin að hafa það eins og
blóm í eggi heima á Eskifirði. Hef það meira að segja það gott að
ég reddaði þriðjudagsvaktinni á Mokka og frestaði ferðinni suður
aftur fram á fimmtudagsmorgunn.
ESKIFJARÐARDVÖLIN
Fimmtudagur: Flaug austur ásamt Óla frænda. Pabbi
kom og náði í okkur á flugvöllinn og NB þetta er í fyrsta skipti
sem ég hitti pabba í tæpt ár…. Geðveikt gaman að hitta
kallinn
J
Brunuðum niður á
Eskifjörð, borðuðum mömmupizzu, spjölluðum og horfðum á sjónvarpið.
Pabbi fór út á sjó um kvöldið þannig að ég rétt náði að segja hæ og
bæ!!!! Knúsaði Elfi Gígju litlu systir í
köku!!!!!!
Föstudagur: Skellti mér í klippingu til Beggu
vinkonu mömmu (sem er besti og skemmtilegasti klippari á landinu…
heheheheheh), síðan fórum við upp í Egilsstaði að útrétta, versla í
Bónus og ná í Begga bróður sem ég hef heldur ekki séð í tæpt ár. Ég
og Óli urðum svo eftir upp í Lönguhlíð (rétt fyrir utan Egilsstaði)
hjá Gunnu frænku (mömmu Salo og Garðars), fengum læri og síðan var
okkur skutlað á “Sex í sveit” á Iðavöllum þar sem Garðar fór með
eitt aðalhlutverkið. Ég hló mig máttlausa yfir leikritinu og svo
kíktum við Óli á pöbbinn á Egilsstöðum og hittum Salo frænku… en
þar sem að gleðin var víst á hinum pöbbnum “Svarthvítu hetjunni”
(frekar slappt nafn á bar) færðum við okkur þangað þegar leið á
kvöldið. “Hljómsveit Friðjóns” lék fyrir dansi og meðalaldurinn
hefur verið um það bil 40 ár, jafnvel meira…. Hehehehhehe!!!! Eftir
að hafa spjallað við Óla, Salo og fleira fólk sem kannaðist við
svipinn á mér en ég hafði ekki hugmynd um hvað var héldum við Salo
heim til hennar, hlustuðum á tónlist, spjölluðum, drukkum rauðvín
og horfðum svo á “Sex and the city”… oh, það er svo gaman að hitta
Salo sætu!!!! Jú, svo hitti ég líka Einar Þorgeir, strákinn hans
Garðars, sem er 3 ára og mesta dúlla í heimi heima hjá Gunnu frænku
í Lönguhlíð, hann er alltaf brosandi og klifrandi út um allt. Svo
má ekki gleyma að minnast á að Gunna er takk fyrir komin með 4ða
íslenska hundinn í safnið, auk þess sem hún er að passa Töru hennar
Salo... heheheheheh!!! Þegar þeir liggja við eldhúsborðið er eins
og það sé hundateppi yfir öllu... var að hugsa um að ræna einu
stykki en efaðist um að komast upp með það!!!!! Sagði Gunnu að hún
ætti á hættu að verða eins og kattasafnarinn ógurlegi sem ég sá
einu sinni í Ophru (átti yfir 180 ketti) en henni var ekki sérlega
skemmt yfir þeirri athugasemd... hehehehhe!!!! Nei, nei... það er
nú allt í lagi að vera með svona marga hunda í sveitinni þar sem
þeir geta hlaupið út um allt!!!Laugardagur: Vaknaði um 12 heima hjá Salo þegar
Gunna kom og náði í mig og Óla frænda. Brunuðum niður á Eskifjörð
og ég var nú bara svona furðu hress miðað allt. Ég og Beggi kíktum
á video í stað þess að læra og svo var stefnan tekin á jólahlaðborð
út í Valhöll (félagsheimili Eskfirðinga). Óli frændi var ekki alveg
jafn hress og ég og tók á það ráð að gefa Begga bróðir miðann sinn
á hlaðborðið þar sem að hann sá ekki fram á að hafa matarlyst.
VÁ!!!!!! Hvað maturinn var geðveikur: allskonar síld, laufabrauð,
grafinn og reyktur lax, hangikjöt, svínahamborgarahryggur,
hreindýrapaté og hreindýrabollur ásamt purusteik og fjórum tegundum
af sósum og eitthvað fleira…. ég hélt ég myndi deyja af seddu!!!!!!
Eftirrétturinn var svo súkkulaðikaka og skyrterta. Gunnar Helga (í
Gunni og Felix) var veislustjóri og síðan var gítarleikari að spila
og syngja jólalög. Eftir matinn fórum við mamma svo bara heim,
lögðumst á meltuna fyrir framan sjónvarpið og ég sofnaði með
köttinn í fanginu
J
Yndislegur
dagur.
Sunnudagur: Það er sko ekkert grín, skal ég segja
ykkur, að koma í heimsókn heim til mín á Eskifjörð. Mamma mín er
besti kokkur í heimi og maður má búast við því að bæta á sig að
meðaltali einu kílói fyrir hvern dag. Gærdagurinn var einmitt
svoleiðis dagur. Mamma bauð Garðari, Höbbu og Einari Þorgeiri í mat
(Salo komst ekki) og það sem að byrjaði sem osta-pasta-réttur með
kalkún… endaði með tveimur réttum til viðbótar. Það var semsagt
pasta, grænt-thai-karrý með kjúklingi og grænmeti, satay-karry
réttur, nan brauð, hrísgrjón og geðveikt gott salat. Restin af
kvöldinu var svo bara tekin í spjall og stórvirkar
meltingaframkvæmdir.
Mánudagur (dagurinn í dag):
Ákvað að fresta
suðurför um nokkra daga og kem því ekki aftur til Reykjavíkur fyrr
en á fimmtudagsmorgun. Ég átti bókað í dag með Óla frænda en tókst
að breyta miðanum. Það fer svo vel um mig hérna!!!!! Vildi að ég
gæti bara flutt mömmu, pabba, Elfi og Begga til Reykjavíkur eða
Kaupmannahafnar. Vissuð þið að það kostar nú bara næstum því jafn
mikið að fljúga austur á Egilsstaði frá Reykjavík eins og að fljúga
til Kaupmannahafnar… Mér finnst þeir gætu nú eytt einhverju af
þessum byggðarstofnunarpeningum til að gera fólki kleift að ferðast
um innanlands án þess að fara á hausinn!!!!! Þá myndu kannski ekki
allir flytja í burtu???? Að vísu er fullt af fólki flutt hingað út
af þessum álversframkvæmdum þannig að kannski lækka fargjöld með
aukinni eftirspurn… en það er svosem ekkert víst þegar það er
einokun í flugi innanlands…
Jæja, nú er ég löngu farin að bulla.
Ætla að fara að læra eitthvað þannig að mér líði betur með að vera
ekki sveitt af stressi á Þjóðarbókhlöðunni!!!!! Annars óska ég
ykkur bara góðra stunda, Perlan
J
»
29.11.2005 13:51:21 / perla7
Ógó veður úti og ég sit andlaus upp á Þjóðarbókhlöðu, hlusta á
Nick Drake og blogga. Nenni ekki ritgerð og nenni ekki að fara að
vinna klukkan 18:00. Langar heldur ekki að drepa ykkur úr leiðindum
þannig að ég læt þetta gott heita í bili.... Með ósk um góðar
stundir, Perlan
»
24.11.2005 21:57:36 / perla7
Lítur út fyrir að ég sé að fara í þriðja skiptið í leikhús á
örskömmum tíma. Ætla nefnilega að kíkja á Garðar frænda í "Að sama
tíma að ári" á Egilsstöðum. Fékk flugfar austur á 1990 kr og
ákvað að skella mér yfir frá fim.-mán. í næstu viku. Ætla líka að
kíkja með mömmu á jólahlaðborð á laugardagskvöldinu þannig að það
er nóg að gera. Óli frændi ákvað meira að segja að skella sér með
sem gerir ferðina bara enn skemmtilegri. Hlakka geðveikt til þar
sem að ég hef ekki komið á Eskifjörð síðan um síðustu áramót... og
ekki nóg með það heldur hef ég hvorki séð pabba minn né Begga
bróðir allan þennan tíma. Auðvitað fer ég austur um jólin en þar
sem að Sölvi kemur heim 16.des-2.jan tími ég ekki að eyða mínum
vanalegu 2 vikum í sveitinni yfir hátíðarnar. Ákvað að bæta mér það
upp með því að kíkja stutt í byrjun des. í staðinn. Ég er svo mikil
mömmustelpa... heheheheheh!!!!
Þetta verða semsagt önnur áramótin sem ég eyði í höfuðborg
Íslands frá því að ég fæddist!!!!!
Annars erum við systurnar að vinna í allsherjar tjill
fimmtudagskvöldi. Sitjum núna á Café Borg í Hamraborg og næsta
stopp er nálægasta sjoppa þar sem við ætlum að kaupa okkur fullt af
ÓGÓI!!!!!! (bara svona til að pirra ykkur sem hafið ekki lært að
meta þennan gullna frasa sem nær yfir allt frá einhverju sem þykir
óaðlaðandi eða ógeðfellt til óhollustu.... í þessu tilviki snakk,
nammi og gos). Að því loknu ætlum við að ráðast á bíómyndasafnið
hans Óla frænda, kúra undir sæng og horfa á video þar til við
sofnum (eins og þeir vita sem þekkja okkur systur tekur það
yfirleitt ekki langan tíma ). Geðveikt ljúft líf!!!!!!!
Knús og kremj, Perlan
»
Síður: 1 2 3 4
|
|